Vörðufell
Til baka í verkefni
Tengibygging á Hvolsvelli
VerkefniVerklok: 2013

Tengibygging á Hvolsvelli

Nú í sumar lauk Vörðufell tengibyggingu við Vallarbraut 16 á Hvolsvelli. Þessi bygging tengir saman sundlaug, eldri búningsklefa og íþróttasal.

Byggingin sem er tæplega 400 m2 samanstendur af nýjum búningsklefum, tengigangi, stiga, lyftu, tæknirými og líkamsræktarsal á efstu hæð.

Byggingin sem er hönnuð af Gylfa Guðjónssyni og félögum er í alla staði hin glæsilegasta og óskar Vörðufell Rangárþingi Eystra til hamingju með mannvirkið.

Myndir úr verki

Tengibygging á Hvolsvelli 2
Tengibygging á Hvolsvelli 3
Tengibygging á Hvolsvelli 4