Vörðufell

Tjónaþjónusta

Vatns-, raka- og lyktartjón — við bregðumst hratt og fagmannlega

Vörðufell tekur að sér ýmis verkefni tengd vatnstjóni, við leitumst við að takmarka tjónið, dælum burt vökva, þurrkum, mælum og lækkum rakastig og hreinsum.

Vatnstjón getur komið til af ýmsum ástæðum, meðal annars vegna sprunginna lagna, stíflaðs niðurfalls, rigningar, snjókomu eða leka eftir slökkvistarf. Við vatnstjón er mjög mikilvægt að bregðast hratt og fagmannlega við til þess að takmarka tjón og minnka líkur á myglu.

Við framkvæmum rakamælingar við öll vatnstjón sem við komum að. Yfirleitt með rakamæli en einnig með hitamyndavél þar sem það á við.

Ef þú hefur lent í vatns- eða rakatjóni er þér velkomið að hafa samband við okkur sama hver stærð tjónsins er til að ræða hvernig best sé að bregðast við.

Þjónustuþættir

Hvað við getum gert fyrir þig

Þurrkun

Vörðufell tekur að sér ýmis verkefni tengd vatnstjóni, við leitumst við að takmarka tjónið, dælum burt vökva, þurrkum, mælum og lækkum rakastig og hreinsum.

Tækjaleiga

Við leigjum út ýmiskonar tæki og búnað til þurrkunar t.d. vatnssugur, dælur, rakaskiljur, blásara og sérhæfð tæki til þurrkunar á parketi. Einnig höfum við jónatæki til lykteyðingar. Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar.

Lykteyðing

Lyktartjón er algengur fylgikvilli vatnstjóns en sérstaklega bruna- og reyktjóns. Starfsfólk Vörðufells hefur sérþekkingu og reynslu á sviði lyktareyðingar, ásamt því að búa yfir öflugum tækjabúnaði til verksins. Lyktareyðing getur oft verið stór framkvæmd — í verstu tilfellum þarf að hreinsa andrúmsloftið, fjarlægja húsgögn og þrífa allt hátt og lágt.

Hreinsun

Hreinsum föst teppi á stigagöngum, stofnunum og íbúðum einnig lausar mottur, renninga og annað. Gerum föst verðtilboð.

Pökkun og flutningur

Tökum að okkur pökkun og flutning á búslóðum og öðru. Getum geymt í stuttan tíma.

Tjónamat

Höfum margra ára reynslu í að flokka og meta búslóðir t.d. eftir bruna- eða vatnstjón. Metum hvað er hægt að bjarga og hvað er ónýtt.

Hafðu samband

Við förum yfir stöðuna með þér og ráðleggjum um næstu skref.